Með hversu löngum fyrirvara er best að bóka flug? Er flug á einhverjum sérstökum dögum vikunnar ódýra en aðra?
Við erum búin að vera í flugbransanum í tíu ár. Og á þessum tíu árum höfum við heyrt öll mögulega ráð um hvernig eigi að verða sér úti um ódýrt flug og hvað þarf að hafa í huga áður en fólk ætlar að ferðast.
Við tókum saman tíu bestu ráðin sem við búum yfir til að geta deilt með ykkur, notendum Dohop.
1. Bókaðu 8-6 vikum fyrir brottför
![ráð1]()
Flugverð fylgja ákveðnu mynstri – fyrst falla þau hægt og rólega en svo byrja þau að hækka því nær sem dregur brottför. Fyrir innanlandsflug er best að kaupa miðann 6-8 vikum fyrir brottför, en fyrir flug erlendis er ódýrast að kaupa miðann 5-6 mánuðum fyrir brottför. Þumalputtareglan er sú að best er að bóka miðann sem fyrst. Þegar gögnin eru skoðuð, kemur hins vegar í ljós að þeir sem bóka flugmiðann fyrir þessi tímabil, borga að meðaltali meira fyrir flugmiðann.
2. Fljúgðu út á þriðjudögum eða miðvikudögum
![ráð2]()
Ef þú vilt reyna að lækka verðmiðann enn meira, þá getur þú bókað flug sem fer annaðhvort á þriðjudögum eða miðvikudögum. Þegar rýnt er í gögnin kemur í ljóst að flug á þessum vikudögum eru að meðaltali ódýrari en þau flug sem fara á öðrum dögum vikunnar.
3. Skráðu þig á verðvakt
![ráð3]()
Þó svo að það sé gott að hafa ráð 1 og 2 í huga til að auka líkurnar á því að finna flug á lægra verði, þá er engin töfratími eða aðferð sem mun tryggja lægsta verðið. Þessvegna mælum við með því að þú skráir þig á verðvakt (“price alert”) og leitir reglulega í nokkra daga. Þannig eykur þú líkurnar á því að detta inn á besta verðið þegar flugfélögin breyta verðunum skyndilega.
4. Ferðist lauflétt
![ráð4]()
Tími er peningar. Ef þú ferðast “létt”, þá sparar þú ekki bara peninga með því að sleppa við aukagjöldin, heldur minnkar þú líka þann tíma og vesen sem fylgir því að bíða eftir og dröslast með allan farangurinn á flugvellinum. Veriði bara létt á því og sparið tíma og peninga.
5. Byrjaðu leitina með ferðaleitarvél
![ráð5]()
Flugleitarvélar leita að flugum hjá hundruðum flugfélaga á sama tíma og er eina leiðin til þess að nota óháðan aðila sem mun ekki leggja neitt ofaná flugmiðann þinn. Ferðaskrifstofur og flugfélög eru augljóslega mjög takmörkuð þegar kemur að því að sýna þér allt sem er í boði.
6. Ekki gleyma hinum flugvöllunum
![ráð6]()
Ertu að fara til New York? Auk þess að leita að flugum til JFK, ekki gleyma að skoða flug til La Guardia og Newark flugvallanna. Ef þú ert að leiðinni til ákveðnar borgar, vertu viss um að þú velur alla flugvelli sem eru í boði. Lággjaldaflugfélögin forðast oft stóru alþjóðlegu flugvellina og fljúga frekar á minni flugvelli sem rukka minna. Hugsanlega getur þetta þýtt að þú verðir að taka leigubíl eða rútu til þess að halda áfram, en sumir kjósa það frekar en að borga miklu meira fyrir flugmiðann.
7. Prófaðu allar samsetningar flugfélaga
![ráð7]()
Einn stærsti kosturinn við að nota flugleitarvél þegar þú ert að leita að ódýrasta flugmiðanum er að þú getur sameinað mörg mismunandi flugfélög í sömu ferð. Dohop sérhæfir sig í þessari tækni (sem við köllum “Self-Connect”) og gerir þér kleift að athuga hvort það sé ódýrara að kaupa 2 aðskilda miða en að fljúga beint með sama flugfélaginu.
8. Ekki stóla á tilboð á síðustu stundu
![ráð8]()
Það hefur verið mjög vinsælt að bíða fram á síðustu stundu með að kaupa flugmiða í þeirri von að flugfélagið hendi í tilboð til að fylla vélina. Þetta er liðin tíð og þeir sem gera þetta ennþá verða yfirleitt fyrir vonbrigðum. Eina undantekningin er hugsanlega hjá þeim sem hafa skráð sig á fréttabréf ákveðinna flugfélaga og eru tilbúin í að ferðast með mjög stuttum fyrirvara.
9. Passaðu þig á aukagjöldunum
![ráð9]()
Við skrifuðum nýlega um það hversu mikið aukagjöld hafa verið að hækka á síðustu árum hjá flugfélögunum. Þessvegna er það sérstaklega mikilvægt núna að vera fullkomlega meðvitaður um það hversu mikið þú mátt koma til með að eyða í aukagjöld. Dæmi eru um að um 40% af heildakostnaði fólks við flug fari í þessi aukagjöld. Sumum gjöldum kemst maður einfaldlega ekki hjá, en vertu a.m.k. viss um hvað er rukkað fyrir.
10. Ekki bóka fyrr en þú ert 100% viss
![ráð10]()
Það er fátt leiðinlegra en að þurfa að breyta eða afbóka flug sem maður hafði pantað áður. En það er ekki bara leiðinlegt, heldur getur það líka verið mjög dýrt. Flest flugfélög rukka þónokkuð mikið fyrir að gera breytingar á flugum og jafnvel breytingar á bókunarupplýsingum, eins og t.d. við að laga ritvillu í nafni. Þessi gjöld eru yfirleitt mun hærri en fólk gerir sér grein fyrir og dæmi eru um að breyting á flugi kosti meira en að kaupa annan flugmiða. Þessvegna mælum við með því að bíða með að bóka flugmiðann þangað til að þú ert eins viss og þú mögulega getur verið.
Aukaráð
Bókaðu fyrsta flug dagsins
![ráð11a]()
Fyrsta flug dagsins er ólíklegast til að seinka. Algengasta ástæða seinkunar er nefnilega seinkun á öðrum flugum. Seinkun á einu flugi getur þessvegna valdið seinkunum á 2-3 flugum seinna um daginn og svona geta tafirnar hlaðist upp á kvöldflugin. Hafðu þetta sérstaklega í huga ef þú ert að bóka flugmiða með 2 flugfélögum, þar sem þú mátt alls ekki missa af seinna fluginu þínu.
The post 10 flugráð Dohop appeared first on Dohop - Ferðalög og fleira.