Það er ekki tekið út með sældinni að vera örvhentur.
Allt er gert til að auðvelda líf rétthentra, en örvhentir þurfa oftar en ekki að sætta sig við að nota tól og tæki sem hönnuð eru með rétthenta í huga. Þetta getur verið alveg sérstaklega pirrandi við ferðalög.
En við höfum fundið ráð við þessu og uppgötvuðum meira að segja einn ofurkraft örvhentra. Og þar sem alþjóðlegur dagur örvhentra er á laugardaginn lögðumst við í smá rannsóknarvinnu.
Við kynnum: 4 ráð Dohop til að auðvelda og einfalda líf örvhentra.
1. Veldu rétta sætið.
Þegar örvhentir ganga um borð í flugvél fylgir því sérstakur kvíði; framundan er barátta við rétthenta sessunautinn um að koma olnboganum vel fyrir í sætunum.
Við erum með lausnina við þessu.
Þegar þú er að bóka sæti í flugvélinni skaltu velja sæti við ganginn vinstra megin þegar komið er í vélina, eða við gluggann hægra megin.
Þetta er eitt af þeim skiptum sem vit er í að borga aukagjaldið fyrir sætaval við bókun flugmiðans.
![seatmap 2]()
2. Notaðu hægri (stundum).
Í sumum menningarheimum getur það þótt óviðeigandi að nota vinstri. Þó að örvhentir séu almennt betra fólk en við hin eru ekki allir búnir að átta sig á því.
Mundu bara að rétta alltaf hægra höndina þegar þú heilsar einhverjum erlendis (eitthvað sem þú gerir væntanlega hvort sem er). Ef þú réttir vinstri höndina í sumum löndum í Asíu gæti það verið talið dónalegt.
Í hlutum Afríku, og Asíu er það litið hornauga að borða með vinstri höndinni. Notaðu því hægri þegar þú ert að borða. (Eftir á að hyggja væri þetta kannski óþarfa greiðvikni af þinni hálfu. Vertu frjáls, vertu þú sjálf! Borðaðu bara með vinstri).
![LeftCup]()
Skál fyrir örvhentum!
Aukaábending fyrir örvhenta í viðskiptaferðum: í Asíu er víst blátt bann við því að rétta nafnspjald með vinstri höndinni. Notaðu hægri til að styggja ekki heimamenn.
3. Taktu dótið þitt með.
Yfirleitt er ekki gert ráð fyrir örvhentum, eins og þeir séu annars-flokks
Flestir rétthentir (muggles) átta sig kannski ekki á því, en það eru fjölmargir hlutir sem eru hannaði fyrir rétthenta og henta illa fyrir örvhenta.
Bandið sem fólk togar í á fallhlífum er til dæmis alltaf hægra megin (sem þýðir reyndar bara að fallhlífastökk er enn meira “extreme” fyrir örvhenta).
Aðra og algengari hluti en bönd á fallhlífum mætti nefna, t.d. skæri, tappatogara og dósaopnara.
![scissors_PNG17]()
Þessi pyntingatól kalla rétthentir “skæri”.
Muna bara að ef þú tekur skæri, hnífa, tappatogara eða dósaopnara með þér í ferðalagið þá er best að pakka því í tösku en ekki handfarangur.
“En ég er örvhent” er ekki gild útskýring fyrir því af hverju þú ert að fara með skæri í flug (þótt ótrúlegt megi virðast).
4. Nýttu þér ofurkraftana.
Það er nefninlega þannig að stundum er það að vera örvhentur alveg eins og að vera með ofurkrafta. Við nefnum dæmi.
Í flestum löndum keyrir fólk hægra megin og skiptir um gír með hægri höndinni.
Eeeeeen… í sumum löndum, eins og þið vitið eflaust, keyrir fólk vinstra (réttu) megin á veginum og gírstöngin og allt er vinstra megin við ökumanninn. Mörgum rétthentum þætti þetta nærri óyfirstíganleg hindrun. En ekki þér!
Nú er það að vera örventur frábært!
“Ég skal sjá um þetta,” segir þú við ferðafélagana á meðan þau stara opinmynnt á þig. Síðan keyrir þú um eins og örvhenta ofurstjarnan sem þú vissulega ert.
![MiniLeft]()
Til að nýta þetta skaltu fá vini þína til að bóka með þér flug til Englands, Ástralíu, Thaílands, Suður-Afríku eða Mauritius-eyja, svo eitthvað sé nefnt. Mauritius-eyjar… farðu þangað. Þær líta svona út:
![Mauritius-eyjar]()
Sundlaugin þarna er sérhönnuð fyrir örvhenta. (Nei, ok. Það er ekki alveg satt).
P.s. Þú getur auðvitað leigt bílaleigubíl á Dohop, til að ganga í augun á vinum þínum.
Deildu þessu með örvhentum vinum þínum. Gefðu þeim sem high-five með vinstri.
The post 4 góð ráð sem ættu að einfalda ferðalög örvhentra appeared first on Velkomin á bloggsíðu Dohop.